Skip to content
Heim » Netöryggisnámskeið

Netöryggisnámskeið

Netöryggi. Við bjóðum upp á hin ýmsu námskeið í stafrænu öryggi

Við bjóðum upp á þrjú mismunandi námskeið í netöryggi. Eitt fyrir almenna borgara, eitt fyrir upplýsingatæknistarfsfólk og eitt fyrir framkvæmdastjóra og aðra yfirstjórnendur. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvert námskeið.

Námskeið í Netöryggisvitund

Þetta námskeið er hannað fyrir alla sem nota tölvur eða snjalltæki í sínu daglega lífi. Námskeiðið er kennt á mannamáli og engin krafa um neina sérstaka tölvukunnáttu. Að námskeiðinu loknu færð þú útgefið vottorð um að þú hafir klárað námskeiðið.

Þetta er frábært námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja sem þurfa að sýna fram á tölvuöryggisnámskeið sem hluta af kröfum frá NIS2, eða öðrum reglugerðum sem og ISO 27001 kröfum.

Fyrir fyrirtæki og félagasamtök og aðra hópa þá er hægt að gera þetta tvenns konar. Annars vegar styttri útgáfa sem hentar vel fyrir hádegisfundi, 45 mín fyrirlestur um helstu grunnatriði og 15 mín spurningar og spjall. Hins vegar sem ítarlegri og lengri námskeið þar sem kafað er aðeins dýpra inn í grunnatriði og nokkur fleiri atriði bætt inn. Þessi lengri eru í kringum tveir tímar eftir því sem mikil umræða og spurningar koma upp.

Dagskrá námskeiðsins

Námskeiðinu er skipt í tvo hluta. Í fyrri hluta námskeiðsins förum við yfir grunnatriðin í netöryggi. Svo er stutt hlé áður en við förum í seinni hlutann. Þar förum við yfir aðeins flóknari atriði netöryggis og þína persónuvernd á netinu.

Fyrri hluti – Grunnatriðin

Í þessum hluta verður fjallað um og skilgreint eftirfarandi efni:

  • Stjórnun lykilorða, góð lykilorð og fleira
  • Margþátta auðkenning (multi-factor-authentication eða MFA)
  • Gagnrýnin hugsun
  • Tenglar, viðhengi, USB diskar
  • Svindl, blekkingar, svik, og annað svínarí
  • Ótti, óvissa, efi (fear, uncertainty, doubt eða FUD)

Seinni hluti – Flóknari atriði og Persónuvernd

Hér förum við inní aðeins flóknari atriði og persónuverndarmál.

  • Áhættu- og ógnargreining
  • Áhættuvarnir
  • Hvaða fótspor við skiljum eftir á netinu og hvernig menn lágmarka þau
  • Góð ráð þegar kemur að persónuverndarmálum

Verð

Næstu námskeið verða auglýst með góðum fyrirvara hér á vefsíðunni okkar, á samfélagsmiðlum okkar og til allra sem skráðir eru á póstlistann okkar.

Verð til einstaklinga er 12.900 kr. Innifalið í verði námskeiðsins er að sjálfsögðu námskeiðið sjálft, léttar veitingar og viðurkenningarskjal að námskeiði loknu. Leitið til stéttarfélags ykkar vegna mögulegrar niðurgreiðslu á námskeiðinu

Hópar

Við bjóðum reglulega upp á þetta námskeið fyrir einstaklinga en við bjóðum einnig upp á að koma í fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök til að halda þessi námskeið fyrir starfsmannahópa. Hafðu samband til að spyrjast fyrir um þetta og bóka okkur inní ykkar hóp.


Námskeið í veikleikastjórnun

Þetta námskeið er fyrir starfsfólk í upplýsingatækni sem leitast eftir þekkingu í veikleikastjórnun og öðrum fyrirbyggjandi netöryggismálum. Efni er skoðað nógu ítarlega til að hafa góða yfirsýn og vita hvað þarf að leggja áherslu á og hvað þarf að skoða nánar. Ekki má búast við að vera sérfræðingur á öllum þessum sviðum eftir þetta stutta námskeið. Við viljum gjarnan fá ábendingar um hvaða önnur námskeið við ættum að bjóða upp á til að efla þekkingu á ákveðnum sviðum.

Dagskrá námskeiðsins

Við munum fara yfir eftirfarandi efni í þessu námskeiði

  • Hvað er veikleikastjórnun og hvers vegna er hún mikilvæg? Við munum fara yfir hvernig þetta er meira en bara að stjórna veikleikum.
  • Hvað fer í gott veikleikastjórnunarkerfi og hvernig setur maður það upp með viðeigandi starfsferlum
  • Netglæpir og eðli þeirra
  • Flokkun gagna: Það er mikilvægt að flokka öll gögn fyrirtækisins og hafa þau vel merkt fyrir hversu viðkvæm þau eru..
  • Lagalegar kröfur og reglugerðir svo sem NIS2. Hver fellur undir hvað og hverjar eru kröfurnar
  • Hvað er CERT-is og hvernig koma þeir að málinu

Verð

Hafðu samband til að spyrjast fyrir um þetta námskeið.

Hópar

Við bjóðum reglulega upp á þetta námskeið fyrir einstaklinga en við bjóðum einnig upp á að koma í fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök til að halda þessi námskeið fyrir starfsmannahópa. Hafðu samband til að spyrjast fyrir um næstu námskeið.


Námskeið í netöryggi fyrir stjórnendur fyrirtækja

Þetta námskeið er ætlað stjórnendum og þeim sem vilja skilja betur netöryggi án þess að týnast í smáatriðum. Hvers vegna netöryggi er mikilvægt og hvers þeir geta vænst af netöryggisáætlunum. Þessi þjálfun er enn í þróun, nánari upplýsingar verða birtar hér þegar þær liggja fyrir. Vinsamlegast hafðu samband ef það eru einhverjar spurningar.