Við bjóðum upp á þrjú mismunandi námskeið. Eitt fyrir almenna borgara, eitt fyrir upplýsingatæknistarfsfólk og eitt fyrir framkvæmdastjóra og aðra yfirstjórnendur. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvert námskeið.
Endilega hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá námskeiðið til þín
Netöryggisvitundar námskeið
Þetta námskeið notar einfalt mannamál og er hannað fyrir almenna borgara hvort sem þeir eru á vinnumarkaðnum eða ekki. Það er ekki búist við neinni sérstakri tölvukunnáttu, þannig að þetta á við um alla tölvunotendur. Að námskeiðinu loknu munt þú fá vottorð um það. Þetta er frábært námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja sem þurfa að sýna fram á tölvuöryggisnámskeið sem hluti af kröfum frá NIS2, DORA eða öðrum reglugerðum sem og ISO 27001 kröfum.
Grunnatriði
Í þessum hluta verður fjallað um og skilgreint eftirfarandi efni:
- Stjórnun lykilorða, góð lykilorð og fleira
- MFA
- Gagnrýnin hugsun
- Tenglar, viðhengi, USB diskar
- Svindl, blekkingar, svik, og annað svínarí
- FUD
- Áhættu- og ógnunargreining
- Áhættuvarnir
Persónuvernd
Hér köfum við inn í persónuverndarmál, hvaða fótspor við skiljum eftir á netinu og hvernig menn lágmarka þau. Við förum líka bara yfir góð ráð þegar kemur að persónuverndarmálum.
Verð og dagskrá
Kiktu á dagatalið okkar til að finna verð og dagskrá. Ef þú finnur ekki eitthvað við hæfi, endilega hafðu samband.
Veikleikastjórnunar námskeið
Þetta námskeið er fyrir starfsfólk í upplýsingatækni sem er að leitast eftir þekkingu í veikleikastjórnun og öðrum fyrirbyggjandi netöryggismálum. Efni er skoðað nógu ítarlega til að hafa góða yfirsýn og vita hvað þarf að leggja áherslu á og hvað þarf að skoða nánar. Ekki má búast við að vera sérfræðingur á öllum þessum sviðum eftir þetta stutta námskeið. Við viljum gjarnan fá ábendingar um hvaða önnur námskeið við ættum að bjóða upp á til að efla þekkingu á ákveðnum sviðum.
Við munum fara yfir eftirfarandi efni í þessu námskeiði
- Hvað er veikleikastjórnun og hvers vegna er hún mikilvæg? Við munum fara yfir hvernig þetta er meira en bara að stjórna veikleikum.
- Hvað fer í gott veikleikastjórnunarkerfi og hvernig setur maður það upp með viðeigandi starfsferlum
- Netglæpir og eðli þeirra
- Flokkun gagna: Það er mikilvægt að flokka öll gögn fyrirtækisins og hafa þau vel merkt fyrir hversu viðkvæm þau eru..
- Lagalegar kröfur og reglugerðir svo sem NIS, NIS2 og DORA. Hver fellur undir hvað og hverjar eru kröfurnar
- Hvað er CERT-is og hvernig koma þeir að málinu
Verð og dagskrá
Kiktu á dagatalið okkar til að finna verð og dagskrá. Ef þú finnur ekki eitthvað við hæfi, endilega hafðu samband.
Netöryggi námskeið fyrir Stjórnendur
Þetta námskeið er ætlað stjórnendum og þeim sem vilja skilja betur netöryggi án þess að tínast í smáatriðin, hvers vegna það er mikilvægt og hvers þeir geta vænst af netöryggisáætlunum. Þessi þjálfun er enn í þróun, nánari upplýsingar verða birtar hér þegar þær liggja fyrir. Vinsamlegast hafðu samband ef það eru einhverjar spurningar.