Sölu stefna

Sölu stefna ferill

Hér er sölustefnan okkar, þar á meðal stefna um endurgreiðslur og skil. Almenna skilmála má finna í skilmálum okkar. Yfirstefna okkar er að veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og halda þeim ánægðum.

Allar pantanir, þar með talið sér- og biðpantanir þarf að greiða um leið og gengið er frá pöntuninni. Við bjóðum uppá margar greiðsluleiðir, þar með Netgiro sem býður uppá greiðslufrest og greiðsludreifingu.

Allar pantanir eru afhentar með Dropp. Pantanir sem berast og eru greiddar fyrir kl. 12:00 á virkum degi eru tilbúnar sama dag — tilbúnar til afhendingar fyrir kl. 17:00 á höfuðborgarsvæðinu og fyrir kl. 19:00 á suðvestur horninu, eða keyrðar heim það kvöld. Pantanir utan suðvestur hornsins krefjast 1–2 virkra daga auka til afhendingar. Pantanir sem berast eftir kl. 12:00, eða um helgar og almenna frídaga, eru afhentar næsta virka dag.

Sölu stefna

Námskeið og aðrir viðburðir

Báðir aðilar geta afbókað öll námskeið og viðburði og fengið fulla endurgreiðslu með allt að 21 dags fyrirvara. Þegar minna en 21 dagur er í viðburðinn er einungis hægt að afbóka í ýtrustu neyðartilvikum. Við metum það ein og sér hvað telst til ýtrustu neyðartilvika. Ef þú þarft að ferðast til að sækja viðburð hjá okkur mælum við ekki með því að bóka óendurgreiðanleg ferðalög fyrr en 21 degi fyrir viðburðinn og kaupa afbókunartryggingu vegna ófyrirséðra aðstæðna. Við berum ekki ábyrgð á neinum ferðakostnaði sem hlýst af afbókun viðburða.

Skil á vörum

Sem hluti að sölu stefnu okkar, bjóðum við uppá 30 daga skilafrest á öllum lagervörum. Sér- og biðpantanir eru undanþegin og er engin skilafrestur á þeim, nema sérstakar aðstæður séu fyrir hendi (sem við munum þurfa að samþykkja). Við erum yfirleit með sýnishorn af öllum vorum og svo hægt sé að prufa vörurnar og sjá hvort þær henti.

Vinsamlegast geymið upprunalegar umbúðir og sjáið til þess að varan haldi upprunalegu útliti þangað til þið vitið hvort þið ætlið að halda vörunni eða ekki.

Til að skila pöntuninni þinni skaltu einfaldlega setja hana í sömu umbúðir og hún kom í, líma skilamiðann á hana og fara með hana á afhendingarstað Dropp eða koma vörunni til okkar í upprunalegu ástandi. Þeir munu taka við vörunni og koma henni til okkar. Ef þú hefur týnt skilamiðanum geturðu útbúið nýjan á https://dropp.is/voruskil

Þegar við erum búinn að fá vöruna aftur og skoða að hún sé í endursölu ástandi, þá endurgreiðum við þér og sendum þér tölvupóst til að láta þig vita. Við stefnum á að hafa endurgreitt þeir á innan við tveim virkum dögum frá því að fá vöruna aftur.

Endurgreiðslur

Endurgreiðslur geta tekið nokkra daga að skila sér inná kortið þitt, eftir kortafyrirtæki. Ef endurgreiðslan er ekki að skila sér, byrjaðu með að hafa samband við kortafyrirtækið.

Ef greiðslukortafyrirtækið þitt hefur engar upplýsingar um endurgreiðsluna frá okkur eftir nokkra daga, vinsamlegast hafðu samband við okkur.

Sölustefna samantekt

Í stuttu máli er ánægja viðskiptavina okkur afar mikilvæg. Hafðu samband ef þú hefur spurningar varðandi endurgreiðslur og skilavörur. Við gerum allt sem við getum til að leysa málin.

Shopping Cart
Scroll to Top