
Inngangur
Fyrir okkur eru framúrskarandi þjónusta og ánægja viðskiptavina ekki bara slagorð; þetta er grunnurinn að menningu okkar. Þess vegna getum við ekki bara sagt þér að kaupa pakka #15 sem hentar öllum. Við þurfum að skilja rekstur þinn og þarfir áður en við getum gefið ráðleggingar. Þess vegna mælum við eindregið með því að allir byrji á ókeypis ráðgjöf svo við getum mælt með sérsniðinni aðgerðaáætlun, ásamt verðhugmynd.
Við skiljum líka að sumir vilja fá tilfinningu fyrir því hvað gæti verið nauðsynlegt og hver kostnaðurinn af því gæti verið. Því höfum við tekið saman nokkur sýnishorn hér að neðan, þetta eru bara dæmi. Við munum alltaf finna lausn sem virkar best fyrir ykkur. Fyrir suma gæti þurft dýpri greiningu og þá byrjum við á pakka #2. Aðrir gætu þurft að byrja á eigna- og veikleikastjórnun, svo fáein dæmi um upphafspunkta séu nefnd (nánari upplýsingar neðar á síðunni). Allir ættu að byrja á ókeypis ráðgjöf.
Verðlagning á vörum
Þú finnur verð á hinum ýmsu vörum okkar í vefversluninni.
Verðlagning á hugbúnaði
Við bjóðum upp á ýmsan fyrirtækjahugbúnað í áskrift. Smelltu á hnappana hér að neðan til að fá upplýsingar um þá vinsælustu, þar sem þeir henta stærstum hluta viðskiptavina. Fyrir hugbúnað sem er keyptur í stökum kaupum, farðu í verslunina. Fyrir aðrar vörur, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Verðlagning á þjónustu
Hér sérðu verðskrána okkar. Fyrsta viðtal er alltaf frítt en í því förum við yfir hvaða þjónustu við höfum upp á að bjóða og skipuleggjum næstu skref. Ráðgjöf í sambandi við vöruval er sömuleiðis ókeypis.
Fyrir höfuðborgarsvæðið geta þessi viðtöl verið í gegnum síma, fjarfundi eða sem staðarfundur þar sem þið getið komið til okkar eða við til ykkar. Utan höfuðborgarsvæðisins er best að fyrsta viðtal fari fram í gegnum fjarfundabúnað eða síma, svo getum við skipulagt heimsókn eftir það. Hafðu samband ef þú hefur spurningar eða vilt bóka fund.
Við bjóðum uppá eftirfarandi pakka:
Pakki 1: Klukkutíma gjald
Innheimt eftir að þjónusta hefur verið veitt: 24.000 kr./klst. plús vsk.
Pakki 2: Stöðu úttekt*
Við komum í heimsókn og förum yfir kerfin og ferlana ykkar og vinnum að því loknu skýrslu um þau atriði sem betur mega fara til að minnka líkur á öryggisfrávikum. Innifalið er fjögurra tíma heimsókn og keyrsla innan höfuðborgarsvæðisins milli kl.10 og 16 á virkum dögum. Skýrsla verður afhent innan tveggja daga frá úttektinni.
Verð fyrir pakka 2 er 95.000 kr. plús vsk. Framkvæmd á þeim endurbótum sem lagðar eru til í skýrslunni eru ekki innifaldar í verðinu en tilboð í vinnu mun fylgja með.
*Vinsamlegast athugið að þetta er aðeins óformleg endurskoðun og skortir alla formfestu og strangleika formlegrar endurskoðunar. Formlegar úttektir eru u.þ.b. 10x dýrari og krefjast mun meiri tíma frá þér líka.
Ef þig vantar formlega ítarlega endurskoðunarskýrslu, vinsamlegast hafðu samband við okkur til að fá tilboð.
Pakki 3: Stutt úttekt
Stutt útgáfa af pakka 2 með tveggja tíma heimsókn. Frábær fyrir minni fyrirtæki þar sem úttekt mun taka styttri tíma og skýrsla unnin í lokin eins og í pakka 2. Verð fyrir pakka 3 er 45.000 kr. plús vsk.
Pakki 4: Fyrirfram borgaður tími
Borgaðu fyrir fram fyrir ákveðinn tímafjölda og sparaðu umtalsvert. Þetta tilboð er uppá 19.200 kr./klst. Þetta samsvarar 20% sparnað miðað við pakka 1. Það eru 50 klukkustunda takmörk á því hvað þú mátt borga fyrir marga tíma fyrirfram í hverjum mánuði. Þessir tímar fyrnast ekki.
Pakki 5: Öryggisstjóra þjónusta
Þessi pakki er fyrir þá sem vilja viðvarandi þjónustu. Við höldum reglulega stöðufundi, förum yfir stöðu kerfana hjá ykkur, svörum spurningum og erum ykkur innan handa þegar kemur að tölvuöryggismálum.
Þessi pakki er til í nokkrum stærðum, til dæmis:
- Lítill: 90.000 kr plús vsk (mest 4 klukkutímar á mánuði)
- Miðlungs: 160.000 kr plús vsk (mest 8 klukkutímar á mánuði)
- Stór: 290.000 kr plús vsk (mest 16 klukkutímar á mánuði)
Akstur
Akstur vegna heimsóknar innan höfuðborgarsvæðisins er innifalinn á milli klukkan 10 og 16. Akstursgjald utan höfuðborgarsvæðisins er eftir nánara samkomulagi.
