Netöryggisvitund 25. mars 2026

12.500 kr. 15.500 kr. með VSK

Námskeið fyrir alla sem vilja bæta öryggi sitt og persónuvernd á netinu og draga úr hættu á að falla fyrir svikum. Þetta námskeið er fjarkensla kennt í gegnum fjarfundarbúnaðinn Zoom.

Out of stock

Vörunúmer: cyberAwere25mar26 Flokkur:
Tryggar og öruggar greiðsluleiðir

Netöryggisvitund

Þetta námskeið er á mannamáli og hannað fyrir almenning, hvort sem fólk er á vinnumarkaði eða ekki. Þess vegna er ekki krafist neinnar fyrri tölvukunnáttu af nemendunum. Því fylgir vottorð um þátttöku. Þetta námskeið er frábær kostur fyrir alla sem leitast eftir auknu öryggi á netinu. Kennslan er lífleg og gagnvirk og við leggjum áherslu á að hún sé eins skemmtileg og fræðandi og hugsast getur. Lengd námskeiðsins fer eftir þátttöku og umræðum, en er venjulega um 2,5 klukkustundir. Við tökum frá þrjár klukkustundir til öryggis. Eitt hlé er um það bil á miðri leið.

Viðfangsefni

Við munum ræða og skilgreina eftirfarandi viðfangsefni.

  • Af hverju fullkomið öryggi er ekki til
  • Umsjón með lykilorðum
  • MFA og aðgangslyklar
  • Gagnrýnin hugsun
  • Tenglar, viðhengi, USB-lyklar
  • Félagslegar tælingar
  • Svik, svindl, brögð, klækir og annað svínari
  • Hræðsluáróður (e. FUD)
  • Áhættur og ógnargreining
  • Varnir gegn ógnum
  • Stafrænt fótspor yðar og hvernig megi lágmarka það
  • Almenn ráð og brellur varðandi persónuvernd á netinu.
  • Falsfréttir og annað falskt efni
  • Hættur samfara smáforritum
  • Persónuverndarhættur af völdum gervigreindarspjallmenna

Upplýsingar um viðburð

Dagsetning: 2026-03-25

Upphafstími: 17:00

Lokatími: 20:00

Símanúmer: +354-551-5105

Netfang: training@securenet.is

Shopping Cart
Scroll to Top