Skip to content

Öruggt Net ehf. – tölvuöryggis lausnin þín.

Verið velkominn á heimasíðu Öruggs Nets ehf. Við sérhæfum okkur í að hjálpa íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum að efla tölvuöryggi, netöryggi og gagnaöryggi þeirra. Lögheimili okkar er í Garðabæ, en við þjónustum allt landið. Við leggjum mikla áherslu á forvarnir, því eins og málshátturinn segir þá ber að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann. Vinnan okkar byggist því á að efla forvarnir til að minnka líkur á öryggisfrávikum. Sem dæmi um þjónustuna sem við bjóðum uppá þá förum við yfir núverandi öryggistöðu og mótum aðgerðaráætlun til að auka tölvuöryggið. Veikleika- og ógnstjórnun er mjög mikilvæg og við höfum mikla reynslu í að setja upp og keyra þannig kerfi.

Það er mikilvægt að hafa öll réttu verkfærin, en um leið mikilvægt að hafa góða stefnur, verklag og ferla því án þeirra er mikil hætta á að tæknin virki ekki sem skildi. Við förum yfir þau tæki og tól sem snúa að tölvuöryggi, sem og verkferla, og skilum að því loknu til ykkar skýrslu með ráðgjöf um hvað má betur fara. Ef þörf er á aðstoð við innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar eða ráðleggingum okkur, þá er það í boði. Hafðu samband og bókaðu ókeypis tíma til að fara yfir hvað við höfum uppá á bjóða og hvað ávinningurinn ykkar er.

Kaupsýslumaður heldur á tölvuskýjaneti sem sýnir netöryggi

Hvernig hjálpum við ykkur með tölvuöryggið ykkar

Hefur þú áhyggjur af kröfum frá NIS eða NIS-2 (veistu kannski ekki hvað það er?) eða ert þú að sækjast eftir vottun frá PCI-DSS, ISO, NIST eða öðrum vottunaraðilum? Við getum hjálpað þér með að undirbúa ykkur fyrir úttekt frá þessum aðilum.

Ertu að lesa um tölvuárásir í fréttum og að velta fyrir þér hvort þú gætir lent í þessu? Þó það sé aldrei hægt að tryggja að það verði aldrei brotist inn hjá þér, þá eru ákveðnir hlutir sem minnka líkurnar mjög til muna. Við getum farið yfir kerfin og ferlana og gefið okkar mat á líkunum á að þú lendir í árás, og staðið árásina af þér. Að lokum skilum við til ykkar skýrslu með okkar ráðleggingum um endurbætur. Ef þig vantar aðstoð við að koma þessum endurbótum í verk, þá erum við til í slaginn.

Þarftu bara aðstoð við að velja réttu tól og tæki fyrir fyrirtækið þitt, eða að velja rétta þjónustuaðila? Við erum með mikla reynslu í þessu og getum auðveldlega aðstoðað þig með þetta.

Mynskeyti með kynningu á fyrirtækinu

Bakgrunnur stofnanda

Stofnandi okkar er búinn að vera í tölvugeiranum frá því stutt eftir að heimilistölvur komu á markaðinn, og hefur því yfirgripsmikla reynslu til að byggja á. Hann byrjaði að nota netið í kringum árið 1985, eða áratug áður en fyrsti vafrinn var fáanlegur og hann var bara táningur. Fyrsti vafrinn var ekki hannaður fyrr en 1993 þegar Mosaic vafrinn var hannaður í háskóla í Bandaríkjunum. Mosaic var síðan grunnurinn að fyrsta vafranum sem var fáanlegur á markaðinum þegar Netscape Navigator kom út í desember 1994.

Stofnandi okkar er með BS gráðu í Tölvuverkfræði sem hann lauk í 1994 og MS gráðu í Tölvuöryggi sem hann lauk í 2019. Báðar þessar gráður eru frá háskólum í Bandaríkjunum þar sem hann var búsettur í 30 ár og starfaði hjá fyrirtækjum eins og Microsoft og T-Mobile US inc. Þú getur lesið meira um ævintýri hans á um okkur síðunni okkar.  Undir flipanum mentunn er listi yfir þær gráður og próf sem hann hefur tekið.

Eftir að hann lauk meistara náminu, skrifaði hann bók um hvernig almenningur getur verið öruggari meðan þeir vafra um á netinu. Þú getur fundið meira um bókina á bóka síðuni okkar.