Netöryggisvitund
Þetta námskeið er á mannamáli og er sérstaklega hannað fyrir almenning, hvort sem fólk er á vinnumarkaði eða ekki. Fólk þarf ekki á neinni sértakri tölukunnáttu að halda til þess að mæta. Námskeiðinu fylgir vottorð um þátttöku. Þetta námskeið er frábær kostur fyrir alla sem vilja auka öryggi sitt á netinu. Námskeiðið er kennt á mjög lifandi og gagnvirkan hátt og við reynum að gera það eins skemmtilegt og fróðlegt og mögulegt er. Lengd námskeiðsins fer eftir því hversu miklar umræður og spurningar koma upp en við reynum okkar besta til að fara ekki yfir 2,5 klukkustundir. Það er eitt hlé í ca. miðjunni.
Viðfangsefni
Við munum ræða og skilgreina eftirfarandi viðfangsefni.
- Af hverju fullkomið öryggi er ekki til
- Umsjón með lykilorðum
- MFA og Passkey
- Gagnrýnin hugsun
- Tenglar, viðhengi, USB-lyklar
- Félagslegar tælingar
- Svik, svindl, brögð, klækir og annað svínerí
- Hræðsluáróður (e. FUD)
- Áhættur og ógnargreining
- Varnir gegn ógnum
- Stafrænt fótspor og hvernig er hægt lágmarka það
- Almenn ráð og brellur varðandi persónuvernd á netinu.
- Falsfréttir og annað falskt efni
- Hættur sem tengjast smáforritum
- Persónuverndarhættur af völdum gervigreindarspjallmenna


