fbpx
Skip to content
Home » Um okkur » Um Öruggt Net

Um Öruggt Net

Gildinn okkar eru áreiðanleiki, fagmenska og öryggi. Öruggt Net ehf er ráðgjafafyrirtæki með lögheimili í Garðabæ. Við vorum skráð hjá ríkisskattstjóra 21. febrúar 2024. Systurfyrirtæki okkar í Bandaríkjunum var stofnað í Seattle WA 20. ágúst 2019 undir nafninu InfoSecHelp LLC. Bæði fyrirtækin voru stofnuð af Sigurði G. Bjarnasyni með þeim tilgangi að hjálpa almenningi og fyrirtækjum að vera öruggari á netinu og minnka líkur á net innbrotum/árásum. Sigurður gengur undir nafninu Siggi, eða Siggi Supergeek, í Bandaríkjunum.

Um stofnanda Öruggs Nets

Sigurður Gísli Bjarnason

Sigurður Bjarnason er netöryggissérfræðingur með áratuga reynslu af tölvumálum og sérfræðiþekkingu á upplýsingatækni sem nær aftur til fyrri hluta tíunda áratugs síðustu aldar. Sigurður er fæddur á Íslandi og bjó meiri hluta fullorðinsára sína í Seattle, Washington, Á þessum tíma var mikil framþróun í tölvugeiranum og grunnur lagður að þeirri tækni sem við þekkjum í dag og þykir sjálfsögð, og var hann ýmist þátttakandi í þeirri þróun eða fylgdist náið með af hliðarlínunni.

Strax sem unglingur byrjaði Sigurður að fylgjast með því sem var að gerast í tölvugeiranum og  varð það strax hans helsta áhugamál sem síðar þróaðist yfir í að verða hans aðalstarf. Allt frá árinu 1985 hefur Sigurður verið í samskiptum við fólk um allan heim í gegn um þjónustur eins og Compuserve, þrátt fyrir að fyrsti vafrinn hafi ekki komið á markaðinn fyrr en desember 1994.

Þegar hann starfaði sem netverkfræðingur (e.network engineer) hjá Microsoft má segja að hann hafi tekið þátt í brautryðjanda starfi í fyrstu skrefum á innleiðingu internetsins.  

Yfir árin hefur Sigurður unnið í ýmsum upplýsingatæknistörfum, meðal annars sem gagnaverstæknir (e. Datacenter technician) og netverkfræðingur hjá stórum netþjónustuaðilum eins og Microsoft og T-Mobile US inc. Tæknilegir hæfileikar hans ná einnig langt út fyrir einfalda netverkfræði. Í dag er hann vel að sér á sviði sjálfvirkni, netlausna, og þekkir einnig vel til söluaðila og þær vörur sem eru í boði.

Undanfarin ár hefur hann unnið eingöngu á sviði netöryggis. Síðan haustið 2017 hefur hann þróað nýja nálgun til að efla netöryggi þeirra sem hafa takmarkaða tölvureynslu. 

Nýjasta verkefni Sigurðar, Öruggt Net ehf, er sérstaklega hannað til að bjóða upp á tæknilega sérfræðiþekkingu og nútímalega nálgun á netöryggi til þeirra sem eru kannski ekki meðvitaðir um hvers konar ógnir geta herjað á kerfi þeirra,allt frá heimilistölvum til stórra fyrirtækja

Með stofnun félagsins vildi hann koma sinni sérfræðiþekkingu til almennings og fyrirtækja og kynna mikilvægi öryggisvarna með því að veita innsýn og þekkingu um leið og hann vill forðast hræðsluáróður. Með því að vera upplýstur um hættur og varnir gegn þeim er hægt að lágmarka árásir og svindl, sem hvorutveggja getur haft afdrifaríka afleiðingar á tölvukerfin og fjárhag viðkomandi.

Ástríða Sigurðar liggur í tölvum og öryggismálum og hvetur hún hann áfram til að dýpka skilning sinn og finna nýjar leiðir til að aðstoða almenning við að aðlagast breyttu stafrænu landslagi og vill ryðja brautina fyrir öruggari interneti – eins og brautryðjanda sæmir.

Sigurður telur að víðtækur tæknilegur bakgrunnur hans gefi honum hæfileika til að útskýra flókin hugtök á máli sem allir geta skilið, burt séð frá allri tækniþekkingu.

Í frítíma sínum hefur Sigurður gaman af einföldu hlutunum í lífinu eins og að hlusta á tónlist, mæta á leikhúsviðburði eða fara í samkvæmisdans. Auk þess nýtur Sigurður þess að vera sjálfboðaliði fyrir hjálparsamtök eins og til dæmis Rauði kross Íslands. Fyrir Sigurð er ekkert mikilvægara en að finna leiðir til að njóta lífsins, hvort sem það er í gegnum tölvur, að vinna með öðrum eða bara hlusta á tónlist.

Þrátt fyrir að hafa búið og starfað stóran hluta ævi sinnar í Bandaríkjunum og haft ensku sem sitt tungumál, er hann sannur stoltur Íslendingur sem vinnur að því alla daga að ná til baka færni sinni í Íslensku.