fbpx
Skip to content
Sale!

Námskeið í netöryggisvitund

Original price was: 12.900 kr..Current price is: 6.450 kr..

Dagsetning: Laugardaginn 2. nóvember 2024

Tímasetning: Námskeiðið hefst kl 13:30 og stendur til 16:00. Við mælum með að mæta 15 mín fyrir námskeiðið.

Staðsetning: Tunglið veislusalur Hard Rock Café Lækjargötu 2, 101 Reykjavík.

Léttar veitingar verða í boði á námskeiðinu.

SKU: 1000-101 Flokkur:

Dagsetning: Laugardaginn 2. nóvember 2024

Tímasetning: Námskeiðið hefst kl 13:30 og stendur til 16:00. Við mælum með að mæta 15 mín fyrir námskeiðið.

Staðsetning: Tunglið veislusalur Hard Rock Café Lækjargötu 2, 101 Reykjavík.

 

Um námskeiðið

Þetta námskeið er hannað fyrir alla sem nota tölvur eða snjalltæki í sínu daglega lífi. Námskeiðið er kennt á mannamáli og engin krafa um neina sérstaka tölvukunnáttu. Að námskeiðinu loknu færð þú útgefið vottorð um að þú hafir klárað námskeiðið.

Þetta er frábært námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja sem þurfa að sýna fram á tölvuöryggisnámskeið sem hluta af kröfum frá NIS2, DORA eða öðrum reglugerðum sem og ISO 27001 kröfum.

Dagskrá námskeiðsins

Námskeiðinu er skipt í tvo hluta. Í fyrri hluta námskeiðsins förum við yfir grunnatriðin í netöryggi. Svo er stutt hlé áður en við förum í seinni hlutann. Í hléinu verður boðið upp á léttar veitingar. Eftir hlé förum við yfir aðeins flóknari atriði netöryggis og þína persónuvernd á netinu.

Fyrri hluti – Grunnatriðin

Í þessum hluta verður fjallað um og skilgreint eftirfarandi efni:

  • Stjórnun lykilorða, góð lykilorð og fleira
  • Margþátta auðkenning (multi-factor-authentication eða MFA)
  • Gagnrýnin hugsun
  • Tenglar, viðhengi, USB diskar
  • Svindl, blekkingar, svik, og annað svínarí
  • Ótti, óvissa, efi (fear, uncertainty, doubt eða FUD)
  • Áhættu- og ógnargreining
  • Áhættuvarnir

Seinni hluti – Flóknari atriði og Persónuvernd

Hér köfum við inn í persónuverndarmál, hvaða fótspor við skiljum eftir á netinu og hvernig menn lágmarka þau. Við förum líka bara yfir góð ráð þegar kemur að persónuverndarmálum.

is_ISIcelandic